Barnaefni
Amma

Hún amma gamla var gæðablóð, og kunni ósköpin öll um börnin karlsins í kotinu og konungsbörnin í höll, og margt, margt fleira, svo fallegt og gott, sem nú er grafið og gleymt. Sumt af því hafði hún séð eða heyrt, sumt af því hafði’ana dreymt. Um jólin var hún einkum svo ör á sögur og líka ljóð. – Við börnin hlustuðum hugfangin og vorum svo glöð og góð. Við lifðum öll þessi æfintýr upp aftur og aftur á ný. – [...]

Lesa meira

Dýrasaga

Einu sinni var hestur og kýr, hestur og kýr. Það voru mestu myndardýr, myndardýr. Hann hét Smári og hún hét Rós, hún hét Rós. Hann átti hesthús, hún átti fjós, hún átti fjós. Þau hittust eitt sinn uppi í dal, uppi í dal, og óðara með sér tóku tal, tóku tal. Þau töluðu um veðrið hægt og hlýtt, hægt og hlýtt, og blessað grasið, svo grænt og nýtt, grænt og nýtt. Og kusa varð skotin í klárinum strax, klárinum strax: [...]

Lesa meira

Jóhannes og börnin

Árið 1932 kom út sú bók Jóhannesar sem langvinsælust hefur orðið, prentuð ótal sinnum og kennir öllum íslenskum börnum að þekkja nafnið hans: Jólin koma. Hvaða íslenskt barn á hvaða aldri sem er hefur ekki sungið þessa vísu: Bráðum koma blessuð jólin, börnin fara að hlakka til. Allir fá þá eitthvað fallegt, í það minnsta kerti og spil. Í bókinni eru kvæðin alþekktu um Grýlu, jólasveinana og jólaköttinn sem öllu öðru fræðslu- og skemmtiefni fremur hafa haldið lífi í þessum [...]

Lesa meira