Árið 1999 fór ég að safna lausavísum föður míns og þeim sem aðrir gerðu um hann sjálfan. Nokkrar kunni ég og vissi að þær væru ekki til í minni annarra eða á prenti. Ég taldi því ástæðu til þess að skrifa þær niður svo þær glötuðust ekki. Síðan hafa nokkrar bæst við, sem ég hef rekist á í bókum, tímaritum, á netinu og víðar. Ég vil biðja þá sem kunna lausavísur eftir hann, sem ekki eru hér, að hafa samband við mig.
Svanur Jóhannesson
Lausavísur
