Skáldasetur Jóhannesar úr Kötlum


Vefsíða um Jóhannes úr Kötlum varð fyrst til vegna aldarafmælis skáldsins árið 1999. Hana má enn nálgast gegnum vefbókasafnið. Afkomendur Jóhannesar ákváðu síðan að skapa fastan stað fyrir skáldið hér á léninu johannes.is og standa að alhliða gagnagrunni og upplýsingaveitu um ævi og skáldskap hans.
Hér mun því sífellt bætast við fróðleikur af ýmsu tagi og í ýmsum myndum – fyrir nemendur, fræðimenn og aðra er áhuga hafa á verkum hans.
Ef einhver telur sig luma á efni sem eigi erindi á vefinn er um að gera að nýta sér tengilinn Hafa samband hér að ofan.


Minningarljóð Jóhannesar

Jóhannes orti í gegnum árin ýmis minningarljóð um ættingja, vini og samtíðarmenn. Hér birtum við þau ljóð sem fundist hafa þótt enn leynist líklega einhver djúpt í hirslum landsmanna sem við vonum að komi í leitirnar með tíð og tíma.


Tweeter button Facebook button