Skáldasetur | Jóhannes úr Kötlum

Magnús Helgason 80 ára
F. 12. október 1857 – D. 21. október 1940

Ljóðkveðja færð Magnúsi Helgasyni skólastjóra áttræðum af Sabandi íslenskra barnakennara. Birtist í Menntamál okt. – des. 1937 og í Vinaspegli 1965.

Lærifaðirinn

Þú heyrðir ungur heilagt kall
frá háborg lands og þjóðar
og óskum þínum orka svall
við arin fornrar glóðar.
Og upp á lærdómslista fjall
þig leiddu dísir góðar.

Og þangað eldföng andans brýn
þeir ungu sóttu á vetri
og héldu einn dag með dýpri sýn
frá dýru menntasetri.
- Það almælt var um augu þín
að engin fyndust betri.

Á milli skauta skyggn þú sást
um skrúðheim sögu og ljóða.
Og aldrei samúð brjóstsins brást
í böli manna og þjóða. -
Og hreinni lagði enginn ást
á allt það fagra og góða.

Þeim tungan reynist forði í för,
sem fræðabrautir ryður.
Og málið lá þér létt á vör
sem ljúfra vatna niður
- og stundum lék þar straumsins fjör,
en stundum djúpsins friður.

Nær var því trausti takmörk sett
er tengist þér til handa?
Hve lengi býr vor litla stétt
að lífi þínu og anda?
Á meðan æskan á sinn rétt
mun æviverk þitt standa.

Er áttatugi áraskeiðs
þú átt að tignu baki,
vér blessum lim þíns mikla meiðs
í mildu handartaki.
Og hjörtun slá í yl þess eiðs
að ást um nafn þitt vaki.

Friðmey Guðmundsdóttir
F. 26. september 1909 – D. 23. febrúar 1969

Minningarljóð

Eins og gullhörpuljóð,
eins og geislandi blær,
eins og fiðrildi og blóm,
eins og fjallalind tær,
eins og jólaljós blítt,
eins og jörðin sem grær,
lifir sál þín í mér,
ó þú systir mín kær.

Þú varst mildi og ást
og þitt móðerni bar
við sinn líknsama barm
dagsins lifandi svar:
allt sem grét, allt sem hló,
átti griðastað þar
– jafnvel nálægð þín ein
sérstök náðargjöf var.

Hversu þreytt sem þú varst,
hvað sem þrautin var sár,
þá var hugur þinn samt
eins og himinninn blár:
eins og birta og dögg
voru bros þín og tár.
Og nú ljómar þín sól
bak við lokaðar brár.

Bogi Th. Steingrímsson
F. 8. júní 1922 – D. 12. júlí 1963

Minningarstef um Boga Th. Steingrímsson frá Miklagarði. Birtist í Tímanum 20. júlí 1963. Bogi fórst af slysförum í Búðardal. Hann var giftur Unu Jóhannsdóttur, Bjarnasonar í Búðardal.

Drúpir gras

Man ég enn þá tíð
í Miklagarði
- ljúfar stundir
ljósaskipta:
sastu mér á kné
svafstu mér í fangi,
glókollur bláeygur,
guðs barn

Ungur var ég þá
og óbrynjaður:
líf fann ég streyma
frá litlu hjarta,
fann aflið vaxa
í fingrum smám,
mildina ylja
mjúkan vanga.

Síðan hef ég vandlega
í sál minni geymt
ljós þinnar veru,
þótt leiðir skildu
- skín það enn skærar
er skapadómur
berst mér að vestan
um blóð á stráum.

Liðinn ert þú inn
í ljóma bjartrar
júlínætur,
jafnhreinn sem forðum
- drýpur dögg,
drúpir gras,
brosir í draumi
barn sem ég unni.

Ástvinum þínum
öllum ég sendi
blóm fagurrautt
úr brjósti mínu,
legg það við sárin,
læt tárin
seytla í þess krónu,
uns sorgin ljómar.

Ekkert fær dáið
af eðli þínu,
ekkert skyggt
ástúð þína.
Sofðu í fangi ljóðs míns,
sofðu í fangi lands þíns,
glókollur bláeygur,
guðs barn -

Unnar Haraldur
F. 8. nóvember 1953 – D. 6. október 1958

Kveðja frá Halla

Til ömmu og afa

Ég er hérna hjá þér, amma mín,
horfi beint í góðu augun þín,
kyssi þína þreyttu, votu brá
þegar sorgin fellur hana á,
lífið sem var lagt í brjóstið mitt
leitar nú síns skjóls við hjarta þitt,
yndið sem þér eitt sinn gefið var
einmitt kýs að vaxa og blómgast þar,
blær sem strýkur þýtt um vanga þinn
það er, sjáðu, einmitt lófinn minn,
geislinn sem vill gera nýjan veg
gegnum myrkrið – það er einmitt ég.

Ég er hérna hjá þér, afi minn,
hjúfra mig að þinni fölu kinn,
tek í þína hrjúfu, mildu hönd
hvenær sem þú varpar mæddri önd,
enn ég geng við þína hægri hlið,
hjarta þínu vil ég gefa frið,
ég vil geyma þar minn unga arf,
ylja þína hvíld og daglegt starf,
allt sem skærast hló í huga mér
hverja stund ég vil að fylgi þér,
geislinn sem vill gera nýjan veg
gegnum myrkrið – það er einmitt ég.

Ég er hérna ömmu og afa hjá
eins þó lokuð virðist nú mín brá,
dauðans fortjald er mér engin töf,
yfir það ég kem sem morgungjöf,
látið ykkar hreinu, hljóðu sorg
hljóma fagra vekja í sinnisborg,
það er ósk mín að þið séuð glöð,
að þið berið lífsins þumgu kvöð
eins og hörpu fyrir mömmu og mig,
munið er þið fetið dimman stig:
geislinn sem vill gera nýjan veg
gegnum myrkrið – það er einmitt ég.

Unnar Haraldur, sem ávallt var kallaður Halli af sínum nánustu, drukknaði ungur við leik í Hveralæknum í Hveragerði. Halli litli átti heima í húsinu Þórshamri við Bröttugötu í næsta húsi við Jóhannes úr Kötlum og Hróðnýju konu hans. Móðir hans var Elsa Auðbjörg Unnarsdóttir, nú búsett í Þorlákshöfn, en amma hans og afi voru Valgerður Elíasdóttir og Unnar Benediktsson.

Erlingur Sigurðarson
Erlingur Sigurðarson er einn helsti  fræðimaður þjóðarinnar í rannsóknum á Davíð Stefánssyni, skáldi frá  Fagraskógi, og er fyrrverandi forstöðumaður Sigurhæða og Davíðshúss á Akureyri.

„Mér verður fyrst hugsað til þess sem minnst er að fyrirferð en e.t.v. efnisríkast alls sem Jóhannes lét eftir sig og birtist í Nýjum og niðum, (en um þá bók skrifaði ég BA-ritgerð mina í íslenskum bókmenntum fyrir rúmum aldarþriðjungi):

Eitt er það ljóð

sem orðvana

vekur af dái

dumba þjóð:

blóð!

Það verður þó ekki val mitt, heldur annað orðfleira um sama efni, en sefjandi kliður þess og einlæg frásögn renna saman í áhrifaríka heild. Þessu kvæði hefur verið undarlega lítið haldið á lofti gegnum tíðina, hefur e.t.v. goldið nábýlisins við Dagskipan Stalíns  sem stendur næst á eftir því í „Sól tér sortna”.  Þetta er kvæðið Skæruliðar sem í yfirlætisleysi sínu kennir manninum öðru fremur að:

…landið er lifandi í kringum hann.

Skæruliðar

Hvert land á sér furðuleg fylgsni

í fjöllum og skógum,

- þar leynist þess eilífa líf

Og oft er þar eingöngu bjargast

við óbreyttan vasahníf.

Þegar vörnin er þrotin á vegum,

og vonin í borgum

er grafin í ösku og grjót,

þá hnípir eitt titrandi hjarta

í helli við jökulrót.

Og bak við hinn bjargfasta steindrang

á berangri hvítum,

sem snuggir í snæfokið grátt,

þar stara tvö stingandi augu

sem stjörnur um kalda nátt.

Og hvarvetna um hvilftir og gljúfur

fer hvimandi svipur

hins ókunna, allslausa manns,

og fálmar með blóðugum fingrum

um fallna stofna síns lands.

Og landið ei dulráðum linnir:

hér leiðir það saman

þá alla, sem lagst hafa út.

Og einn hefur öxi eða hamar

og annar poka eða klút.

Og daga og nætur í dreifðum

og dauðbleikum hópum

er læðst gegnum rjóður og runn:

langsoltnar, leitandi verur

með lokaðan, herptan munn.

Og öll þessi hljóðnæmu eyru

í ofvæni hlusta

á böðlanna forhertu för.

Og bráðlega að brjóstinu á einum

er beint hinni fyrstu ör.

Og einn eftir annan þeir falla,

og annarleg skelfing

hins glataða gegnum þá fer:

hver stjórnar þeim ókunnu öflum,

sem alstaðar leynast hér?

Og þegar hinn síðasti þreifar

um þunneggjar blaðsins,

sem inn millum rifja hans rann,

þá skilur hann loksins, að landið

er lifandi í kringum hann.

Og nú sér hann yfir sér augu,

sem opna með varúð

hið svimandi hyldýpi sitt.

Og hvíslað er: Hér er mín vagga,

- en hvert var erindi þitt?

Og hann, sem til þess fór að heiman

að herja og ræna

það allt, sem hér elskar og þreyr,

hann hniprar sig saman á hjarni

hins hertekna lands – og deyr.

En hópurinn veifar nú hljóður

þeim hérbeittu vopnum,

sem áttu að afmá hans líf.

- Og nú er sá byssusting búinn,

sem bjargaðist áður við hníf.

Og áfram í afdrepi hverju

hinn ókunni vakir

og strýkur hið glampandi stál.

- Og landið er land af hans holdi

og hann er sál af þess sál.

Höskuldur Björnsson
Höskuldur Björnsson

F. 26. júlí 1907 – D. 2. nóvember 1963

Minningarstef um Höskuld Björnsson listmálara. Birt í Þjóðviljanum 17. nóvember 1963.

Við tínumst burt

Að loknu stríði lít ég veru þína

við litabylgjur haustsins saman renna:

hér sé ég ljós í lyngi rauðu brenna,

á lygnum himni sé ég stjörnu skína

Og næturfrostið fer um vitund mína,

uns flögra undir skörum kristalslinda

blikin af dýrum draumi þinna mynda

- dagar svo enn og loftin blána og hlýna.

Hógláti vinur: hugir fylgja þér

- hve hljótt er nú um fugla þína alla

og ástarblómsins andvarp þungt og heitt.

Hverful er jörðin. Stopul stundin er.

Stigin af sviði okkar gömlu fjalla

tínumst við burt úr leiknum eitt og eitt.

Guðrún Ásmundsdóttir
Guðrún Gerður Ásmundsdóttir, leikari, leikstjóri og leikritahöfundur, er landsmönnum að góðu kunn fyrir áratuga starf í þágu leiklistar. Guðrún var í fyrra heiðruð sérstaklega af félögum sínum í Leikfélagi Reykjavíkur og þá gerð að heiðursfélaga og er hún eina konan fyrir utan Vigdísi Finnbogadóttur sem þann heiður hefur hlotið. Guðrún var einmitt einn helsti baráttumaðurinn fyrir byggingu Borgarleikhússins á sínum tíma. Guðrún valdi Íslendingaljóð sem ljóð þessa mánaðar.

Íslendingaljóð 17. júní 1944

Land míns föður, landið mitt,
laugað bláum straumi:
eilíft vakir auglit þitt
ofar tímans glaumi.
Þetta auglit elskum vér,
— ævi vor á jörðu hér
brot af þínu bergi er,
blik af þínum draumi.

Hvíslað var um hulduland
hinst í vestanblænum:
hvítan jökul, svartan sand,
söng í hlíðum grænum.
Ýttu þá á unnarslóð
Austmenn, vermdir frelsisglóð,
fundu ey og urðu þjóð
úti í gullnum sænum.

Síðan hafa hetjur átt
heima í þessu landi,
ýmist borið arfinn hátt
eða varist grandi.
Hér að þreyja hjartað kaus,
hvort sem jörðin brann eða fraus,
— flaug þá stundum fjaðralaus
feðra vorra andi.

Þegar svalt við Sökkvabekk
sveitin dauðahljóða,
kvað í myrkri um kross og hlekk
kraftaskáldið móða.
Bak við sára bænarskrá
bylti sér hin forna þrá,
þar til eldinn sóttu um sjá
synir vorsins góða.

Nú skal söngur hjartahlýr
hljóma af þúsund munnum,
þegar frelsisþeyrinn dýr
þýtur í fjalli og runnum.
Nú skal fögur friðartíð
fánann hefja ár og síð,
varpa nýjum ljóma á lýð
landsins, sem vér unnum.

Hvort sem krýnist þessi þjóð
þyrnum eða rósum,
hennar sögur, hennar ljóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu íss og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki ung og frjáls
undir norðurljósum.

Loftur Þorsteinsson
Loftur Þorsteinsson

járnsmiður

f. 16. febrúar 1894 – d. 2. janúar 1938

Hér hvílist þú nú, vinur, í hátíðlegri ró,

með heiðríkjunnar vökula yfirbragð sem fyr.

- En stirðnuð er nú vörin, sem hjartanlegast hló,

og hljóður er vor þanki – hann staldrar við og spyr.

Svo var það jafnan áður, er eldur lífsins dó,

og enn er sama þögnin við grafarhúmsins dyr.

Vér vildum eiga með þér svo langtum lengri för,

- til landnáms stóð þinn hugur og kveikti táp og þor.

Vér getum varla trúað, að flætt sé burt þitt fjör,

sem fyrir nokkrum dögum hér gekkst á meðal vor,

með æskukraft í fasi og augun djörf og snör,

og áhugann sem leiftrandi neista um sérhvert spor.

Vér þráum ætíð sólskin og sumargróin lönd.

og samleið við hinn glaða og æðrulausa mann,

er rís úr djúpi tímans sem reiðubúin hönd

og reiðubúinn andi, – vér setjum traust á hann.

Og þú varst slíkur maður: Þú stýrðir heill að strönd,

og stefndir á þann vita, sem hæst og fegurst brann.

Þú ungur sást þá hugsjón, er manninn göfgar mest:

að miða allt við sannleika og bróðurlegan rétt.

Af auðvaldi né bókstaf þú aldrei blekkjast lést,

en orka þín til dauðans var helguð þinni stétt.

Og viss varst þú um sigur og barðist jafnan best,

er blóði þínu örðugust takmörk voru sett.

Með völundarins lægni þú hertir hug og mund,

- og hvort heldur þú gáðir í bláan logann inn,

eða beindir þinni hugsjón á hálfvegjunnar fund,

eða handlékst bara í rökkrinu gítarstrenginn þinn,

var alltaf eitthvert fagnandi ljóð í þinni lund,

sem lék í mjúkum bylgjum um enni þitt og kinn.

Og bjartur var þinn hamar og barði niður tröll,

er brautina þú ruddir á öreiganna leið. -

Með brúði þinni gekkst þú á framsýninnar fjöll,

og fyrirheitna landið í rauðu mistri beið…

Nú kveður þig þín brúður, nú kveðjum vér þig öll,

- en kraftur þinn mun verka um nýrra alda skeið.

Í friði hvíl þú, vinur. – Þig verndar móðir jörð,

- hún vefur þig í dag í sitt grófa, kalda lín.

en þegar vorið kemur og frelsar dal og fjörð,

að fótum þinna óska hún leggur blómin sín.

- Og þegar vorið kemur og sólin vermir svörð,

skal sál vor faðma blómin eitt kvöld – og minnast þín.

Hallgrímur Jónasson 70 ára
F. 30. október 1894 – D. 24. október 1991

Til Hallgríms Jónassonar sjötugs, 30/10 1964

Þú sem á fjalli stóðst með stolt í augum
og stuðlabergið lagðir í þitt mál
og fannst í blænum þjóðar þinnar sál
er þögnin mikla draup í gullnum baugum.

Þú átt þann eld sem hitar hjarta mínu
því – hver var ástfangnari af landi sínu ?

Jóhannes úr Kötlum

Ingvar Hallgrímsson sonur Hallgríms sendi mér þetta ljóð í nóvember 1999 á hundruðustu ártíð föður míns.

Svanur Jóhannesson

Hróðmar Sigurðsson
Hróðmar Sigurðsson
F. 14. maí 1912 – D. 28. nóvember 1957.

Ingunn Bjarnadóttir
F. 25. mars 1905 – D. 29. apríl 1972.

Jóhannes orti þetta ljóð í orðastað Ingunnar þegar Hróðmar lést.

Hróðmar kallaði Ingunni alltaf Ingu og hún var líka kölluð það af vinum og kunningjum.

Kveðja til Hróðmars
frá Ingu

Dauðinn er þungur sem þangið í sjó
og þó
gaf lífið þér aldrei svo ljúfa ró.
Mér heyrist eins og hjarta slá í draumi.

Feimin og titrandi feta ég inn
og finn
að nú ertu vaknaður, vinur minn.
Það blikar ljós – það blikar ljós á Mýrum.

Sit ég í myrkri, þitt sorgarvíf,
og svíf
á klæði sem ástin gaf eilíft líf.
Við hittumst þá í Hornafirði á morgun.