Ljóðið mitt
Silja Aðalsteinsdóttir

Eitt eftirlætisljóð eftir Jóhannes úr Kötlum, það er erfitt. Fyrsta sem mér datt í hug var Sóleyjarkvæði, en það flokkast ekki undir “eitt ljóð”. Eftir margra daga árangurslausa yfirlegu yfir “fullorðinsbókunum” kom ég að níunda bindi ritsafnsins – sem ég sá sjálf um útgáfu á fyrir 23 árum, 1984. Þá hugsaði ég með mér: Auðvitað!

Lesa meira

Matthías Johannessen

Þegar ég var ungur vöktu athygli mína atómljóð í Tímariti Máls og menningar eftir Anonymus, en eitt þeirra, sem var sett upp eins og formleysa, var þrælbundið þegar að var gáð. Þá sást að hefðbundið góðskáld var þarna á ferð og síðar kom í ljós að það var enginn annar en Jóhannes úr Kötlum. Mig langar að minna á þetta ljóð vegna virðingar við skáldið og þróun ljóðlistar.

Lesa meira

Jón Sigurðsson

Auðvitað vel ég mörg ljóð og innbyrðis ólík þegar ég fer að reyna að velja úr kvæðum Jóhannesar úr Kötlum. Þar er svo margt hlýtt og innilegt og mannlegt og mannúðlegt sem höfðar til mín og kveikir alls konar gamlar kenndir og hugsanir sem eru þá ennþá til einhvers staðar djúpt í hugskotinu. En ég veit að ég verð að skera úr og taka eitt fram yfir önnur í þetta sinn.

Lesa meira

Eysteinn Þorvaldsson

Mörg af ljóðum Jóhannesar úr Kötlum hafa verið förunautar mínir allar götur frá unglingsárum. Eitt er samt það ljóð sem talar til mín oftar en önnur við margskonar aðstæður í amstri daganna og á góðum stundum. Í skýrleika sínum og einlægni hefur það tekið sér bólfestu í hjartastað. Í einfaldleika sínum verður það leiðarljós þess sem leitar að lífssannindum og hamingju.

Lesa meira

Ármann Jakobsson

Ljóðið sem ég valdi er úr Sjödægru (1955). Ég hika ekki við að kalla hana eina af fimm merkilegustu ljóðabókum 20. aldarinnar og þar eru mörg mögnuð ljóð sem væri freistandi að velja og ræða aðeins um (Ýskelfir, Rímþjóð, Næturróður, Hellisbúi, Heimur í smíðum, Eitt stakt hagl, Miðnætti í Keníu).

Lesa meira