Guðborg Aðalsteinsdóttir er fyrrverandi bóndi í Kaldaðarnesi og víðar á Suðurlandi, en á nú heima í Hveragerði. Hún hefur tekið þátt í bókmenntahópi eldri borgara í Hveragerði síðan hann var stofnaður fyrir nokkrum árum. Guðborg er ættuð vestan úr Dölum, er frænka Jóhannesar og hefur mikið dálæti á ljóðum hans.
Lesa meiraSvanur Jóhannesson er sonur Jóhannesar úr Kötlum. Hann hefur um árabil verið í forsvari fyrir afkomendur Jóhannesar varðandi útgáfumál og auk þess safnað og skrásett flest þeirra ljóða og greina eftir föður sinn sem aldrei hafa komið á prent. Svanur hefur ásamt syni sínum staðið að baki Skáldaseturs Jóhannesar úr Kötlum, allt frá árinu 1999 þegar aldarafmæli skáldsins var fagnað með ýmsum hætti.
Lesa meiraGústaf Óskarsson fæddist á Ísafirði árið 1933. Hann starfaði við kennslu í 40 vetur. Hann býr nú í Hveragerði.
„Fyrstu kynni mín af skáldinu Jóhannesi úr Kötlum voru þau að ég eignaðist tvær bækur þegar ég var átta eða níu ára gamall. Þetta voru bækurnar Jólin koma og Bakkabræður.“
Erlingur Sigurðarson er einn helsti fræðimaður þjóðarinnar í rannsóknum á Davíð Stefánssyni, skáldi frá Fagraskógi, og er fyrrverandi forstöðumaður Sigurhæða og Davíðshúss á Akureyri.
Lesa meiraGuðrún Gerður Ásmundsdóttir, leikari, leikstjóri og leikritahöfundur, er landsmönnum að góðu kunn fyrir áratuga starf í þágu leiklistar. Guðrún var árið 2009 heiðruð sérstaklega af félögum sínum í Leikfélagi Reykjavíkur og þá gerð að heiðursfélaga og er hún eina konan fyrir utan Vigdísi Finnbogadóttur sem þann heiður hefur hlotið.
Lesa meira