Greinar
Jóhannes og Steinn Steinarr

Mörgum er kunnugt um að Jóhannes úr Kötlum kenndi Steini á unga aldri vestur í Dölum, en Jóhannes var þá farkennari og ferðaðist á milli bæja í sveitum Dalasýslu og í Breiðafjarðareyjum. Síðar lágu leiðir þeirra saman í höfuðborginni og vinskapur þeirra entist öll þau ár sem Steinn átti ólifuð. Var hann í mörg ár heimagangur á heimili Jóhannesar. Báðir voru óhræddir við að gagnrýna skáldskap og skoðanir hins, en þótti einnig undurvænt hvorum um annan, eins og lesa má [...]

Lesa meira

Roðasteinninn og ritfrelsið

Hér verður fjallað um bók sem olli umtalsverðu fjaðrafoki í íslensku menningarlífi og var tilefni mikilla blaðaskrifa árið 1957. Lögregluembættið hafði afskipti af henni og andans menn fordæmdu hana. Sumir töldu bókina upploginn þvætting og argasta klám en aðrir vegsömuðu hana fyrir löngu tímabæra hreinskilni í hvatalífslýsingum.

Lesa meira

Fáeinir óreiðukenndir kaflar um Jóhannes úr Kötlum og brjóstvit alþýðunnar

– eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur káldið fór hávaðalaust af stað undir vöggusöng og álftakvaki, lét sem hann svæfi, hræddist heiminn og forðaðist borgir… Skáldið úr Kötlum fór ekki af stað með neinum ærslum… En þá fló honum í brjóst hinn ósýnilegi fugl: hugsjónin, og brá birtu á allt, líf sögu og þjóðfélag, og veröldin skein í nýju ljósi, varð víð og björt…“1 Þannig lýsir Kristinn E. Andrésson því þegar kommúnisminn nær tökum á Jóhannesi úr Kötlum, og skyldi engan svo [...]

Lesa meira

Jólin koma – aftur og enn á ný

Jólakvæði Jóhannesar úr Kötlum eru nú í 24. prentun, eiga 75 ára afmæli og tróna á toppi bóksölulista ljóðabóka. Hún er langvinsælasta bók skáldsins.
ÞAÐ var á Barónsborg á árunum kringum og eftir 1960 og biðin eftir jólunum jafn mikil þraut og hún hefur alltaf verið íslenskum börnum. Í þeim þjáningum var þó líkn.

Lesa meira

Hátíð fer að höndum ein

Um kveðskap Jóhannesar úr Kötlum um jólin – eftir Hjalta Hugason skáldskap Jóhannesar úr Kötlum (1899-1972) tvinnuðust saman tveir þættir sem í hugum margra eru andstæðir: Róttæk vinstristefna og kristin trúarhugsun. Hér verður brugðið ljósi á kveðskap Jóhannesar um jólahátíðina og kannað hvernig þessi stef endurspeglast í henni. Jólaljóð Jóhannesar eru mjög fjölbreytt allt frá hinu stórkarlalega barnakvæði Grýla hét tröllkerling leið og ljót til lágstemmdra erinda sem hann orti út frá þjóðvísunni Hátíð fer að höndum ein. Grýlukvæði og [...]

Lesa meira