Haustið 1952 eða nánar tiltekið 28. september fór íslensk sendinefnd í fyrsta sinn til Kínverska alþýðulýðveldisins sem hafði verið stofnað aðeins fáeinum árum áður eða 1949. Jóhannes úr Kötlum var formaður þessarar nefndar, en með honum fóru Þórbergur Þórðarson, Ísleifur Högnason, Nanna Ólafsdóttir, Skúli Þórðarson og Zóphonías Jónsson.
Lesa meira„Þegar ég var barn að aldri, var hann til þess fenginn að troða inn í mig einhvers konar undirstöðuatriðum menntunarinnar. Þetta gekk ekki mjög vel og varð okkur báðum til sárra leiðinda. En þá voru að öðru leyti skemmtilegir tímar í Dölum vestur og skemmtilegt fólk, sem lifði lífi sínu í löngum, söngrænum draumi, slungnum ástsjúkri dulúð, yndislegu framhjáhaldi og margs konar geðþekkri vitleysu.“
Lesa meiraBókin Ljóðaúrval, nýtt safn ljóða Jóhannesar úr Kötlum, sem gefin var út af Forlaginu/Mál og menningu, hefur selst vel undanfarnar vikur. Bókin er nú í þriðja sæti á lista yfir mest seldu bækur Forlagsins og á metsölulista Eymundsson hefur hún hertekið sjötta sætið.
Lesa meiraHátíðardagskrá verður haldin sunnudaginn 9. maí til heiðurs Jóhannesi úr Kötlum í tilefni af útkomu nýrrar bókar með úrvali ljóða hans. Dagskráin fer fram í Bókasal Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu og er öllum opin.
Lesa meiraSíðastliðinn miðvikudag var Silja Aðalsteinsdóttir, útgáfustjóri Máls og menningar, gestur Kiljunnar á RÚV. Silja ræddi við Egil Helgason um Ljóðaúrval, bók sem hún ritstýrði og ritar inngang að, en þessi útgáfa er að sögn Silju ætluð nýjum kynslóðum ljóðaunnenda sem aðeins hafa kynnst Jóhannesi að litlu leyti í gegnum sína skólagöngu.
Lesa meira