Guðborg Aðalsteinsdóttir er fyrrverandi bóndi í Kaldaðarnesi og víðar á Suðurlandi, en á nú heima í Hveragerði. Hún hefur tekið þátt í bókmenntahópi eldri borgara í Hveragerði síðan hann var stofnaður fyrir nokkrum árum. Guðborg er ættuð vestan úr Dölum, er frænka Jóhannesar og hefur mikið dálæti á ljóðum hans.
Lesa meiraSvanur Jóhannesson er sonur Jóhannesar úr Kötlum. Hann hefur um árabil verið í forsvari fyrir afkomendur Jóhannesar varðandi útgáfumál og auk þess safnað og skrásett flest þeirra ljóða og greina eftir föður sinn sem aldrei hafa komið á prent. Svanur hefur ásamt syni sínum staðið að baki Skáldaseturs Jóhannesar úr Kötlum, allt frá árinu 1999 þegar aldarafmæli skáldsins var fagnað með ýmsum hætti.
Lesa meiraEinn lítill mansöngur úr Kiljansrímum. Afmælisstef til Halldórs Laxness fimmtugs. Birtist í Þjóðviljanum 23. apríl 1952.
Lesa meiraF. 21. janúar 1895 – D. 1. mars 1964. Minningarstef um Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Birt í Þjóðviljanum 8. mars 1964.
Lesa meiraF. 11. ágúst 1885 – D. 9. október 1953. Minningarstef um Ingibjörgu Benediktsdóttur. Birt í Þjóðviljanum þann 20. okt. 1953.
Lesa meira