Magnús Helgason 80 ára
Magnús Helgason 80 ára

F. 12. október 1857 – D. 21. október 1940

Ljóðakveðja færð Magnúsi Helgasyni skólastjóra áttræðum af Sambandi íslenskra barnakennara. Birtist í Menntamál okt. – des. 1937 og í Vinaspegli 1965.

Lærifaðirinn

Þú heyrðir ungur heilagt kall
frá háborg lands og þjóðar
og óskum þínum orka svall
við arin fornrar glóðar.
Og upp á lærdómslista fjall
þig leiddu dísir góðar.

Og þangað eldföng andans brýn
þeir ungu sóttu á vetri
og héldu einn dag með dýpri sýn
frá dýru menntasetri.
- Það almælt var um augu þín
að engin fyndust betri.

Á milli skauta skyggn þú sást
um skrúðheim sögu og ljóða.
Og aldrei samúð brjóstsins brást
í böli manna og þjóða. -
Og hreinni lagði enginn ást
á allt það fagra og góða.

Þeim tungan reynist forði í för,
sem fræðabrautir ryður.
Og málið lá þér létt á vör
sem ljúfra vatna niður
- og stundum lék þar straumsins fjör,
en stundum djúpsins friður.

Nær var því trausti takmörk sett
er tengist þér til handa?
Hve lengi býr vor litla stétt
að lífi þínu og anda?
Á meðan æskan á sinn rétt
mun æviverk þitt standa.

Er áttatugi áraskeiðs
þú átt að tignu baki,
vér blessum lim þíns mikla meiðs
í mildu handartaki.
Og hjörtun slá í yl þess eiðs
að ást um nafn þitt vaki.