F. 26. september 1909 – D. 23. febrúar 1969
Minningarljóð
Eins og gullhörpuljóð,
eins og geislandi blær,
eins og fiðrildi og blóm,
eins og fjallalind tær,
eins og jólaljós blítt,
eins og jörðin sem grær,
lifir sál þín í mér,
ó þú systir mín kær.
Þú varst mildi og ást
og þitt móðerni bar
við sinn líknsama barm
dagsins lifandi svar:
allt sem grét, allt sem hló,
átti griðastað þar
- jafnvel nálægð þín ein
sérstök náðargjöf var.
Hversu þreytt sem þú varst,
hvað sem þrautin var sár,
þá var hugur þinn samt
eins og himinninn blár:
eins og birta og dögg
voru bros þín og tár.
Og nú ljómar þín sól
bak við lokaðar brár.
Birt þann 6. september 2010
