F. 8. júní 1922 – D. 12. júlí 1963.
Minningarstef um Boga Th. Steingrímsson frá Miklagarði.
Birtist í Tímanum 20. júlí 1963. Bogi fórst af slysförum í Búðardal.
Hann var giftur Unu Jóhannsdóttur, Bjarnasonar í Búðardal.
Drúpir gras
Man ég enn þá tíð
í Miklagarði
- ljúfar stundir
ljósaskipta:
sastu mér á kné
svafstu mér í fangi,
glókollur bláeygur,
guðs barn
Ungur var ég þá
og óbrynjaður:
líf fann ég streyma
frá litlu hjarta,
fann aflið vaxa
í fingrum smám,
mildina ylja
mjúkan vanga.
Síðan hef ég vandlega
í sál minni geymt
ljós þinnar veru,
þótt leiðir skildu
- skín það enn skærar
er skapadómur
berst mér að vestan
um blóð á stráum.
Liðinn ert þú inn
í ljóma bjartrar
júlínætur,
jafnhreinn sem forðum
- drýpur dögg,
drúpir gras,
brosir í draumi
barn sem ég unni.
Ástvinum þínum
öllum ég sendi
blóm fagurrautt
úr brjósti mínu,
legg það við sárin,
læt tárin
seytla í þess krónu,
uns sorgin ljómar.
Ekkert fær dáið
af eðli þínu,
ekkert skyggt
ástúð þína.
Sofðu í fangi ljóðs míns,
sofðu í fangi lands þíns,
glókollur bláeygur,
guðs barn -
Birt þann 5. september 2010
