Höskuldur Björnsson
Höskuldur Björnsson

F. 26. júlí 1907 – D. 2. nóvember 1963.

Minningarstef um Höskuld Björnsson listmálara.
Birt í Þjóðviljanum 17. nóvember 1963.

Við tínumst burt
Að loknu stríði lít ég veru þína
við litabylgjur haustsins saman renna:
hér sé ég ljós í lyngi rauðu brenna,
á lygnum himni sé ég stjörnu skína

Og næturfrostið fer um vitund mína,
uns flögra undir skörum kristalslinda
blikin af dýrum draumi þinna mynda
- dagar svo enn og loftin blána og hlýna.

Hógláti vinur: hugir fylgja þér
- hve hljótt er nú um fugla þína alla
og ástarblómsins andvarp þungt og heitt.

Hverful er jörðin. Stopul stundin er.
Stigin af sviði okkar gömlu fjalla
tínumst við burt úr leiknum eitt og eitt.