F. 16. febrúar 1894 – D. 2. janúar 1938.
Hér hvílist þú nú, vinur, í hátíðlegri ró,
með heiðríkjunnar vökula yfirbragð sem fyr.
- En stirðnuð er nú vörin, sem hjartanlegast hló,
og hljóður er vor þanki – hann staldrar við og spyr.
Svo var það jafnan áður, er eldur lífsins dó,
og enn er sama þögnin við grafarhúmsins dyr.
Vér vildum eiga með þér svo langtum lengri för,
- til landnáms stóð þinn hugur og kveikti táp og þor.
Vér getum varla trúað, að flætt sé burt þitt fjör,
sem fyrir nokkrum dögum hér gekkst á meðal vor,
með æskukraft í fasi og augun djörf og snör,
og áhugann sem leiftrandi neista um sérhvert spor.
Vér þráum ætíð sólskin og sumargróin lönd.
og samleið við hinn glaða og æðrulausa mann,
er rís úr djúpi tímans sem reiðubúin hönd
og reiðubúinn andi, – vér setjum traust á hann.
Og þú varst slíkur maður: Þú stýrðir heill að strönd,
og stefndir á þann vita, sem hæst og fegurst brann.
Þú ungur sást þá hugsjón, er manninn göfgar mest:
að miða allt við sannleika og bróðurlegan rétt.
Af auðvaldi né bókstaf þú aldrei blekkjast lést,
en orka þín til dauðans var helguð þinni stétt.
Og viss varst þú um sigur og barðist jafnan best,
er blóði þínu örðugust takmörk voru sett.
Með völundarins lægni þú hertir hug og mund,
- og hvort heldur þú gáðir í bláan logann inn,
eða beindir þinni hugsjón á hálfvegjunnar fund,
eða handlékst bara í rökkrinu gítarstrenginn þinn,
var alltaf eitthvert fagnandi ljóð í þinni lund,
sem lék í mjúkum bylgjum um enni þitt og kinn.
Og bjartur var þinn hamar og barði niður tröll,
er brautina þú ruddir á öreiganna leið. -
Með brúði þinni gekkst þú á framsýninnar fjöll,
og fyrirheitna landið í rauðu mistri beið…
Nú kveður þig þín brúður, nú kveðjum vér þig öll,
- en kraftur þinn mun verka um nýrra alda skeið.
Í friði hvíl þú, vinur. – Þig verndar móðir jörð,
- hún vefur þig í dag í sitt grófa, kalda lín.
en þegar vorið kemur og frelsar dal og fjörð,
að fótum þinna óska hún leggur blómin sín.
- Og þegar vorið kemur og sólin vermir svörð,
skal sál vor faðma blómin eitt kvöld – og minnast þín.
Birt þann 26. júlí 2010
