F. 30. október 1894 – D. 24. október 1991
Til Hallgríms Jónassonar sjötugs, 30/10 1964
Þú sem á fjalli stóðst með stolt í augum
og stuðlabergið lagðir í þitt mál
og fannst í blænum þjóðar þinnar sál
er þögnin mikla draup í gullnum baugum.
Þú átt þann eld sem hitar hjarta mínu
því – hver var ástfangnari af landi sínu ?
Jóhannes úr Kötlum
Ingvar sonur Hallgríms sendi mér þetta ljóð í nóvember 1999 á hundruðustu ártíð föður míns.
Svanur Jóhannesson
Birt þann 18. júlí 2010
