Daði Skúlason
Daði Skúlason

F. 29. júní 1928 – D. 23. ágúst 1953.

Daði Skúlason
Dönustöðum

Velkominn heim, þú ungi Íslands meiður,
til upphafs þíns í ljúfum dalafriðnum.
Að taka við þér langt að komnum, liðnum,
sem lífs þú værir – slíkur er nú heiður
hins græna vallar, blóms og blárra dagga.
Hér býður þér nú skjól þín gamla vagga.

Að vísu er sloknuð vonarstjarna – bundin
við væringjann er kæmi heill af sævi
og gleddist hér við ávöxt langrar ævi
- en enginn veit nær kemur skapastundin
og því skal héðan æðruorð ei falla:
við ungs manns leiði nýjar skyldur kalla.

Þó sortni ský við hnjúk er himinn yfir
sem helgar rót í moldu og spörr á flugi
og sendir ljós í systra þinna hugi
- hinn sanni kjarni allrar veru lifir
og enn mun sólin björt á bæinn skína
og blessa föður þinn og móður þína.