F. 7. mars 1888 – D. 8. október 1959.
Augað greinir unaðsmyndir,
angurtóna hlustin nemur
- það er eins og allar lindir
opnist þegar dauðinn kemur.
Þú ert liðinn, ljúfi vinur
- lifir þó í draumi björtum:
ekkert glatast, ekkert hrynur,
allt er geymt í vorum hjörtum.
Líf þitt var sem ljós á vegi
- ljós er býr í trúu starfi
það mun lifa þótt það deyi,
það er hluti af lífsins arfi.
Því skal minning þakklát skína,
því skal blessa liðið gengi:
að hafa öðlast alla þína
ást og fegurð svona lengi.
Hér þó foldin fölni að sinni,
falli dropar regns á veginn,
sæl mun reynast sálu þinni
sólskinsströndin hinumegin.
Birt þann 12. apríl 2010
