Auðbjörg Sigurðardóttir 75 ára
Auðbjörg Sigurðardóttir 75 ára

F. 1. maí 1873 – D. 24. febrúar 1956

Til Auðbjargar 1. maí 1948

Það er eitthvað, Auðbjörg mín,
okkar tveggja í milli,
sem er betra en brennivín
og betra en magafylli.

Ef þú kemur í minn bæ
allt vill fara að gróa
- þú hefur með þér þennan blæ,
sem þíðir alla snjóa.

Mér finnst opið eins og haf
undir brúnum þínum
allt það bezta, er Ísland gaf
augasteinum sínum.

Alúð þín fer oft um mig
eins og fyrirheiti
- mér finnst vor að vita þig
vera á næsta leiti.

Meðan eðli eins og þitt
ógnum heims má bifa
og senda skáldum skinið sitt,
skal ég glaður lifa.