Sigurjóna Jónsdóttir 60 ára

Til Sigurjónu Jónsdóttur

4. október 1954

Þér til sæmdar þennan dag
það skal stuðlum bundið:
öllu hreinna hjartalag
hef ég ekki fundið.

Fágað sérhvert orð þitt er,
alúð mild þar hljómar
- alla stund í augum þér
innri birta ljómar.

Gakktu enn þinn góða veg:
greiddu öðrum haginn
hógvær, ung og elskuleg
eins og fyrri daginn.