F. 13. september 1889 – D. 20. maí 1971
Til Jóns Sumarliðasonar
13. september 1959
Þegar tekzt úr tímans firrð
töfra forna að seiða,
hvergi man ég hlýrri kyrrð
heldur en á Breiða.
Allt sem hafði hreinan tón,
hver einn gróðurblettur,
þreifst í skjóli þínu, Jón
-þú varst eins og klettur.
Birtir enn í brjósti mér
af brosi þínu og orðum
þegar ég var í vist hjá þér
vetrartímann forðum.
Í þeim ljúfa anda skal
ósk mín vera þessi:
sólskinið úr Sökkólfsdal
sjötugan þig blessi.
Birt þann 28. september 2008
