F. 26. júlí 1896 – D. 27. maí 1983
Afmælisvísur til Jóhannesar Ásgeirssonar
26. júlí 1966
1.
Alltaf hækkar aldurinn:
ekki vil ég nefna minn,
bezt er líka að þegja um þinn
- þá fá báðir vilja sinn.
2.
Hitt sé yrkisefnið nú,
að við höfum, ég og þú,
blandað geði í góðri trú
- gjarnan yljar vitund sú.
3.
Stef og sögu, stórt og smátt,
stráið grænt og vatnið blátt,
heiðardalsins hjartaslátt,
höfum við löngum saman átt.
4.
Okkar kæra æskubyggð,
æfintýraljóma skyggð,
gaf þér forðum forna dyggð:
fölskvalausa og hljóða tryggð.
5.
Þessa staðreynd þakka ber
- þó að tíminn bylti sér,
hæli fast í huga þér
hefur þú jafnan búið mér.
6.
Allt mitt þel er þér í hag
- það sem bezt á við í dag
er að taka lítið lag,
lyfta glasi og kveða brag.
7.
Gyðja ein, sem getur allt,
geri þér sitt yndi falt,
vermi þig, ef þér er kalt
- þú á hana treysta skalt.
Birt þann 28. september 2008
