Hafsteinn Guðmundsson 50 ára
Hafsteinn Guðmundsson 50 ára

 

F. 7. apríl 1912 – D. 1. september 1999

Hafsteinn Guðmundsson prentsmiðjustjóri í Hólum 50 ára

Til Hafsteins 7. apríl 1962

Sem steinn úr hafi stendur þú í dag
og stormar heimsins gnauða um fleti þína:
þeir sverfa þig -þeir fægja letrið fína
sem flytur gegnum aldir sögu og brag.

Því þó að mjög á allt hið ytra reyni
á ódauðleikinn heima í þessum steini.

Er fimmtugt djúpið flæðir þér um brá
þess fyrsta bylgja lyfti þínu hjarta
til stefnumóts við geislagyðju þá
sem glóir ætíð bak við myrkvann svarta.

Hún brenni í þína vitund stóra stafi
sem standast hverja raun á tímans hafi.